AFRE2NÆ05
Titill | Afrekshugsun - Næring íþróttafólks |
Námsgrein | Afrekshugsun |
Viðfangsefni | Næring íþróttafólks |
Skammstöfun | AFRE2NÆ05 |
Staða | |
Þrep | 2 |
Einingafjöldi | 5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla | |
Lýsing |
Megin viðfangsefni áfangans er næring íþróttafólks og mikilvægi réttrar næringar, m.a. hvað á að borða og hvenær á að borða, til að ná hámarksárangri í sinni grein. Það er farið yfir ráðleggingar Landlæknisembættis varðandi rétt mataræði. Fjallað um hver orkuþörf okkar er miðað við líkamsbyggingu og daglega hreyfingu. Það er farið nokkuð ítarlega í orkuefnin kolvetni, fitu og prótein með þarfir íþróttafólks í huga. Skoðað er hlutverk og mikilvægi vítamína og steinefna í fæðunni og hversu mikilvægt er að vökvajafnvægi líkamans sé rétt. Fjallað verður um fæðubótarefni, hvaða næringarefni það eru sem verið er að sækjast eftir og hvenær er þörf á að borða fæðubótarefni eins og amínó sýrur og kreatín. Einnig eru fæðubótarefni skoðuð með hliðsjón af ólöglegri lyfjanotkun. Farið er yfir hvað er átröskun og hvernig átraskanir koma fram í íþróttum. |
Forkröfur | Engar |
Þekkingarviðmið | Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
|
Leikniviðmið | Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
|
Hæfniviðmið | Að þessum áfanga loknum skal nemandi geta nýtt sér þekkingu sína til að velja rétt mataræði og stuðla þannig að betri heilsu og líðan, ásamt því að ná sem bestum árangri í sinni íþrótt. Hann skal hafa þekkingu til að geta metið hvað sé honum fyrir bestu hvað varðar mataræði og velja úr því fæðuframboði sem er á boðstólnum með gagnrýnum huga. |
Námsmat | Símat. Verkefnavinna og tímapróf jafnt yfir önnina. Ekki lokapróf. |
Útgáfunúmer | |
Skólar | |
Fyrirmynd | |