FRAN1BB05
Titill |
Grunnáfangi B |
Námsgrein | Franska |
Viðfangsefni | |
Skammstöfun | FRAN1BB05 |
Staða | |
Þrep | 1 |
Einingafjöldi | 5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla | |
Lýsing |
Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun, þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu frönskumælandi landa. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Til að æfa þessi atriði geta eftirfarandi atriði legið til grundvallar í kennslunni: Stuttar frásagnir, hvað fólk gerir í fríi eða á ferðalögum, póstkort og stutt bréf, borgarlíf og að lýsa borg og staðsetningu borga, að vísa til vegar, að sinna erindum í borg, áhugaverðir staðir, helstu byggingar og staðsetning þeirra. Aðrir efnisþættir geta verið menningarviðburðir, persónulýsingar, þ.e. útlit og persónuleiki, líkaminn, heilsa og lifnaðarhættir, tómstundir og áhugamál svo og matur, matarvenjur, veitingastaðir, matseðlar og innkaup. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig sem mest á frönsku í töluðu og rituðu máli. Einnig er lögð áhersla á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun. |
Forkröfur | FRA1AA05 |
Þekkingarviðmið | Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
|
Leikniviðmið | Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
|
Hæfniviðmið | Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
|
Námsmat |
Fjölbreytilegt námsmat. Allir fjórir færniþættir tungumálsins eru metnir, þ.e. tal, ritun, hlustun og lestur. |
Útgáfunúmer | |
Skólar | |
Fyrirmynd | Áfanginn er á stigi A1 skv. evrópska tungumálarammanum. |