HAGF3RE05
Titill | Hagfræði |
Námsgrein | Rekstrarhagfræði |
Viðfangsefni | Rekstrarhagfræði |
Skammstöfun | HAGF3RE05 |
Staða | |
Þrep | 3 |
Einingafjöldi | 5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla | |
Lýsing |
Fjallað er um grunneiningar þjóðarhagkerfisins og samspil þeirra í markaðsþjóðfélagi. Hringrás efnahagslífsins er útskýrð og fjallað um helstu hagstærðir þjóðarbúsins og innbyrðis tengsl þeirra. Meginþættir í efnahagsþróun eru teknir fyrir og hagræn vandamál skoðuð með dæmum úr íslensku efnahagslífi. Kynnt er margvísleg framsetning á hagfræðilegu efni. Nemendur fá þjálfun í að lesa úr línuritum og innsýn í notkun vísitalna, hlutfallareiknings, vegins meðaltals og fleiri algengra aðferða við vinnslu á hagfræðilegum upplýsingum. Áhersla er lögð á að nemendur geti hagnýtt sér Netið til öflunar hagfræðilegra upplýsinga. |
Forkröfur | HAGF2HA05 |
Þekkingarviðmið |
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á: -Að nemendur öðlist yfirsýn yfir fyrirtæki sem efnahagsheild og hvernig það þrífst í samkeppni við önnur fyrirtæki í samfélagsheildinni. –Helstu þætti er varðar innra skipulag og ytri aðstæður fyrirtækja -Að nemendur geti flokkað atvinnugreinar, kynnast umhverfi og starfsgrundvelli fyrirtækja, stefnumótun og markmiðssetningu, kostnaðargreiningu og grunnþáttum bókhalds |
Leikniviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast leikni til að: -Taka þátt í efnahagsumræðu út frá faglegu sjónarmiði og með gagnrýnni hugsun -þekkja þær aðferðir sem notaðar eru í innra skipulagi fyrirtækja og framleiðslu -þekkja til hugtaka í fjárhagslegum rekstri fyrirtækja og þjálfist í einfölum útreikningum - ná að tengja hugmyndir rekstrarhagfræðinnar við raunverulegan rekstur og framleiðslu fyrirtækja -þekkja það viðskiptaumhverfi sem fyrirtæki búa við á Íslandi í dag -Hagnýta sér Internetið til öflunar þekkingar á hafgræðilegum upplýsingum á ábyrgan og gagnrýnin hátt |
Hæfniviðmið |
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu sem hann hefur aflað sér til að: -Gera sér grein fyrir grunnatriðum rekstrarhagfræðinnar -Geta tjáð skoðanir sínar á skýrann og skilmerkilegan hátt -Gera sér grein fyrir samspili hagfræðinnar í samfélaginu |
Námsmat | Námsmat er verkefnamiðað símat. Áhersla er lögð á að nemendur taki virkan þátt í verkefnum og umræðum. |
Útgáfunúmer | |
Skólar | |
Fyrirmynd | |