HEIM2BY05
Titill |
Gagnrýnin hugsun |
Námsgrein | Heimspeki |
Viðfangsefni | Byrjunaráfangi í heimspeki |
Skammstöfun | HEIM2BY05 |
Staða | |
Þrep | 2 |
Einingafjöldi | 5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla | |
Lýsing | Hvernig vitum við að veruleikinn er eins og hann birtist okkur? Hvað er þekking? Hvað er sannleikur? Hvað er vitund? Er guð til? Hvað er rétt og rangt? Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í vestrænni heimspekisögu frá Grikklandi til forna fram að lokum 20. aldar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu í þróun heimspeki í gegnum mannskynssöguna ásamt grundvallarskilningi á helstu heimspekikenningum sem hafa mótað viðhorf mannsins til siðferðis, frelsis, guðs og eðli heimsins í kringum hann. Röfræði, frumspeki, siðfræði, fornaldarheimspeki og trúarheimspeki eru þær undirgreinar heimspekinnar sem verða kynntar í þessum áfanga. Einnig verður notast við kvikmyndir með heimspekilegt inntak sem námsefni. Áhersla er lögð á sjálfstæða hugsun og sjálfstæð vinnubrögð, nemendur eru hvattir til að horfa með gagnrýnum augum á námsefnið jafnt sem eigin skoðanir og viðhorf. Mikil áhersla verður lögð á umræður í tímum og því er góð mæting og virkni mjög mikilvæg. Verkefnavinna miðar að því að nemendur öðlist hæfni til að nýta eigin þekkingu og reynslu við úrlausn nýrra viðfangsefna. |
Forkröfur | Engar |
Þekkingarviðmið |
|
Leikniviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
|
Hæfniviðmið |
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
|
Námsmat | Símat. Fjölbreytt verkefni, kaflapróf, ritgerð og virkni í tímum er metið jafnt og þétt yfir önnina. |
Útgáfunúmer | |
Skólar | |
Fyrirmynd | |