HÖNN2ÞR05
Titill: Hönnun og þrykk
Námsgrein: Textílhönnun
Viðfangsefni: Tauþrykk, búta- og útsaumur
HÖNN2ÞR05
Þrep
2
Einingafjöldi 5
Lýsing
Hannað út frá handverksgreininunum þrem tauþrykki, útsaumi og bútasaumi. Nemandi tekur afstöðu til persónulegs hönnunarferlis, annað hvort hönnun út frá eigin líkama eða almennri híbýlahönnun. Kynntar verða helstu aðferðir í ofangreindu handverki og nemendur gera a.m.k. eina tilraun með þrykk, handsaum og bútasaum í einni prufu. Í framhaldi af því fer hver og einn sína eigin leið að tilbúinni vöru, ásamt vinnulýsingu og hugmynd að markaðssetningu á henni.
Forkröfur
Engar
Þekkingarviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Hugmyndavinnu, þ.e. ferlinu frá gagnasöfnun að tilbúinni, nothæfri afurð
- Undirbúningi verkefna á sviði tauþrykks, útsaums og bútasaums
- Því að semja og nota verklýsingar
- Að þekkja mismunandi aðferðir við tauþrykk, útsaum og bútasaum
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Skrá hugmyndir
- Vinna með og eftir verklýsingu
- Skilja samband milli hugmyndar, hráefnis, tækni, aðferða og niðurstöðu
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Vinna verkefni frá hugmynd að tilbúnu verki
- Fullvinna nytjahlut eða flík frá hugmynd að fullunnu verki
- Skila af sér skilmerkilegri hugmyndavinnu og vinnulýsingu svo hægt sé að fara eftir henni síðar
- Vinna hönnun sína út frá heild og/eða sögu, t.d. að hanna út frá ákveðnu þema
- Skila sér fullunnu verki, ásamt vinnumöppu þar sem myndrænum verkefnum annarinnar eru gerð skil
- Viðhafa vönduð vinnubrögð í öllu vinnuferlinu
Námsmat
Matið byggir á reglulegum skilum á vinnumöppu með öllum verkefnum áfangans. Nýting tímans, í skóla og sem heimaverkefni er metin í dagbók hópsins, ásamt vinnuframlagi í sameiginlegri sýningu hópsins seinni part annar. Einskonar leiðsagnarmat viðhaft með samvinnu hvers hóps og kennara hans