LEIH2HE05
LEIH2HE05 - Leiðbeinandi í hestamennsku:
Lýsing: Í áfanganum er farið í grunnatriði hestatengdar ferðaþjónustu. Nemandinn fær kennslu og æfingu í störfum greinarinnar og lærir að aðstoða fagfólk við að leiðbeina byrjendum (börnum og fullorðnum) í hestamennsku. Farið er í öryggismál, samskipti við viðskiptavini og almennar vinnureglur á hestaleigum og reiðskólum. Kennd er skyndihjálp í hestamennsku. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur.
Forkröfur: HEST3ÞG03, REIM3ÞG05
Þekkingarviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Almennum öryggismálum á hestaleigum og reiðskólum
- Skyndihjálp í hestamennsku
- Hvernig aðstoða á fagfólk við reiðkennslu og eða stjórn hópa í hestaleigum.
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Aðstoða fagfólk við reiðkennslu og eða stjórn hópa í hestaleigum.
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Geta aðstoðað í hestatengdu ferðaþjónustu fyrirtæki.
- Getað aðstoðað reiðkennara við kennslu byrjenda í hestamennsku.
- Getað notað skyndihjálp.
Námsmat: Áfanginn er lokaprófslaus og er símatsáfangi. Símatið byggir á ástundun og verkefnavinnu.
Útgáfunúmer:
Skólar:
Leiðbeiningar:
Fyrirmynd: