SAGA2IS05
Titill |
Saga Íslands 870-1800 |
Námsgrein |
Saga |
Viðfangsefni |
Saga Íslands 870-1800 |
Skammstöfun |
SAGA2IS05 = SAGA2SÍ05 |
Staða |
|
Þrep |
2 |
Einingafjöldi |
5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla |
|
Lýsing |
Í áfanganum kynnast nemendur helstu atburðum, persónum og stefum í sögu Íslands frá landnámi fram til 1800. Munu nemendur bæði fá að kynnast yfirlitssögu landsins en einnig verður notast við einsögu nálgun til að kynnast aðstæðum einstaklinga. Markmið áfangans er að nemendur kynnist sögu lands og þjóðar, skilji hvaða áhrif röð atvika hafði á framvindun sögunnar og læri að skilja og skynja uppruna þess samfélags sem þau búa í.
|
Forkröfur |
Nemandi hafi klárað SAGA2YA05. |
Þekkingarviðmið |
Nemandi afli sér þekkingar og skilnings á: - helstu þáttum/viðburðum Íslandssögu 870-1800 - orsökum þeirra og áhrifum á íslenskt samfélag - heimildaöflun - að kynna ákveðið viðfangsefni sem byggir á heimildaöflun |
Leikniviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast leikni í: - að færa rök fyrir máli sínu - heimildavinnu - að skrifa einfalda fræðilega texta - að lýsa aðstæðum á tilteknum tíma og rakið atburðarrás í stórum - dráttum - að skýra helstu viðburði Íslandssögunnar - að gera greinarmun á staðreynd og túlkun - að geta beitt gagnrýnni hugsun - að draga sjálfur ályktanir - að flytja af nokkru öryggi endursagnir, kynningar og lýsingar á tilteknum málefnum |
Hæfniviðmið |
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: -kynna fræðilegt efni á viðeigandi hátt -færa rök fyrir niðurstöðum -gera sér grein fyrir orsökum og afleiðingum -geta rakið þróunarferli einhvers þjóðfélagsþáttar s.s. hugmyndar, atvinnuvegar, menningarsvæðis -tengja atburði Íslandssögunnar við okkar tíma -geta sýnt kunnáttu sína í ljósu og samfelldu máli -geta lagt mat á gildi heimilda með því að beita gagnrýnni hugsun |
Námsmat |
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámsskrá.
|
Útgáfunúmer |
|
Skólar |
|
Fyrirmynd |
|