SAGA3HS05
Titill |
Heimssaga Fornöld og Miðaldir |
Námsgrein |
Saga |
Viðfangsefni |
Heimssaga Fornöld og Miðaldir |
Skammstöfun |
SAGA3HS05 = SAGA2FM05 |
Staða |

Þrep |
3 |
Einingafjöldi |
5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla |

Lýsing |
Í áfanganum er fjallað um heimssöguna frá landbúnaðarbyltingunni til loka miðalda. Fjallað verður um sögu fornþjóða frá Súmerum til Rómverja sem og hvernig menning, samfélagsstofnanir og helstu atburðir á miðöldum mótuð Evrópu. Unnið verður í verkefnavinnu til að skilja og greina helstu atburði í sögu þessa tímabils og mikilvægi þeirra. Lagt verður mat á áhrif fyrrgreindra þátta og verður skorað á viðteknar hugmyndir þess tíma sem og okkar með því að beita gagnrýnni hugsun. Unnið verður með heimildir sem og skapandi verkefni sem ætlað er að dýpka skilning nemenda á viðfangsefninu.

Forkröfur |
Nemandi skal hafa klárað 5 einingar á 3. Þrepi. |
Þekkingarviðmið |
Nemandi afli sér þekkingar og skilnings á: - helstu þáttum/viðburðum heimssögunnar á fornöld og miðöldum
- orsökum þeirra og áhrifum á framvindun mála
- heimildaöflun
- mikilvægi einstakra atburða og tengsl við samtíma þess og nútímann |
Leikniviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast leikni í: - að færa rök fyrir máli sínu
- vinna með heimildir
- að skrifa fræðilega texta - að geta lýst aðstæðum á tilteknum tíma og rakið atburðarás í stórum dráttum
- að kynna ákveðið viðfangsefni sem byggir á ítarlegri heimildaöflun
- að skýra helstu viðburði tímabilsins
- að gera greinarmun á staðreynd og túlkun
- að draga sjálfur ályktanir
- að geta beitt gagnrýnni hugsun við rannsókn á mismunandi viðfangsefni
- að flytja af nokkru öryggi endursagnir, kynningar og lýsingar á tilteknum málefnum |
Hæfniviðmið |
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: - kynna fræðilegt efni á viðeigandi hátt
- færa rök fyrir niðurstöðum
- gera sér grein fyrir orsakir og afleiðingar geta rakið þróunarferli einhvers þjóðfélagsþáttar s.s. hugmyndar, atvinnuvegar, menningarsvæðis geta tengt atburði heimssögunnar við okkar tíma. rökræða söguleg deilumál og þekki mismunandi sjónarmið geta sýnt kunnáttu sína í ljósu og samfelldu máli. vinna sjálfstætt og setja fram sögulega greiningu á hugmyndum og atburðum þessa tímabils |
Námsmat |
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámsskrá.

Útgáfunúmer |

Skólar |

Fyrirmynd |