ÞÝSK1AA05
Titill |
Grunnáfangi A |
Námsgrein | Þýska |
Viðfangsefni | Byrjunaráfangi í þýsku |
Skammstöfun | ÞÝSK1AA05 |
Staða | |
Þrep | 1 |
Einingafjöldi | 5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla | |
Lýsing |
Þar sem þetta er byrjunaráfangi, er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun. Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Fléttað er inn í kennsluna menningu þýskumælandi landa. Til að þjálfa ofantalin atriði geta m. a. eftirfarandi efnisþættir legið til grundvallar í kennslu: Kynning á sjálfum sér og öðrum, að heilsa og kveðja, fjölskylda og fjölskyldutengsl, aldur, búseta, starf, þjóðerni, lönd og tungumál, enn fremur hús og híbýli, tölur, dagar, mánuðir, árstíðir og veður. Aðrir efnisþættir geta verið matur og drykkur, matarvenjur, máltíðir og innkaup, tómstundir og áhugamál, skoðanir (að líka/mislíka), klukkan og tímasetningar. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig sem mest á þýsku í töluðu og rituðu máli. Einnig er lögð áhersla á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun. |
Forkröfur | Engar forkröfur |
Þekkingarviðmið |
Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
|
Leikniviðmið | Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
|
Hæfniviðmið | Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
|
Námsmat |
Fjölbreytilegt námsmat í öllum fjórum færniþáttum tungumálsins, þ.e. lestri, hlustun, tali og ritun.
|
Útgáfunúmer | |
Skólar | |
Fyrirmynd | Áfanginn er á stigi A1 skv. evrópska tungumálrammanum. |