EFNG1MG03
Titill |
Efnisfræði-MG |
Námsgrein | Grunndeild málmiðnaðar |
Viðfangsefni |
Nemendur öðlast þekkingu til að velja stál og meðhöndla það á réttan hátt við vinnu sína. Þeir læra að notfæra sér staðla til þess að finna réttan málm fyrir þau verk sem þeir vinna að hverju sinni. Þeir þekkja grunnatriði í framleiðslu á járni og stáli, formun þess og mótun, framleiðslu á steypujárni, steypuáli og öðrum málmum, bræðslu og storknun, eiginleika og notkun, svo og varmameðhöndlun á stáli. |
Skammstöfun | EFNG1MG03 |
Staða | |
Þrep | 2 |
Einingafjöldi | 3 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla | |
Lýsing | |
Forkröfur | |
Þekkingarviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: - skilgreiningar á járni, stáli, járnsteypu, ryðfríu stáli, áli og öðrum málmum - járnsteypu, flokka hennar og eiginleika - framleiðsluferli stáls, hvað er gert og í hvaða tilgangi - uppbyggingu stáls, galla í atómbyggingu og áhrif galla - kunna skil á hersluaðferðum, skilyrðum og stöðlum - vinnsluhæfni stáls - almenna vinnslu stáls, þ.m.t. herslu, suðuhæfni, kosti og ókosti álmelma og ryðfrís stáls - helstu kosti og ókosti áls og ryðfrís stáls
|
Leikniviðmið | Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: |
Hæfniviðmið |
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: - lesið úr stöðlum - valið stál, ryðfrítt stál, ál og aðra málma eftir stöðlum og ákveðið hvaða efni hentar best fyrir mismunandi aðstæður og notkun - sagt til um herslumöguleika - ákveðið hvort hagkvæmt sé að steypa hlut eða vinna hann úr stáli - sagt til um áhrif mismunandi álags á efnið - valið á milli smíðastáls, áls og ryðfrís stáls |
Námsmat | Námsmat byggist á stöðuprófum, verkefnum og lokaprófi. |
Útgáfunúmer | |
Skólar | |
Fyrirmynd | |