Nám í FSu
Undir tenglunum má finna gagnlegar upplýsingar um nám í Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Meginmarkmið framhaldsskóla samkvæmt 2. gr. laga nr. 92/2008 ,, ... er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og virkri þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi með því að bjóða hverjum nemanda nám við hæfi. Framhaldsskólar búa nemendur undir þátttöku í atvinnulífinu og frekara nám." Í samræmi við þetta býður Fjölbrautaskóli Suðurlands upp á fjölbreytta flóru í námsmöguleikum; stúdentsbrautir, styttri brautir, verknámsbrautir, starfsbrautir og listnámsbrautir svo eitthvað sé nefnt. Þá starfrækir skólinn starfsstöðvar í fangelsunum á Litla-Hrauni og Sogni.
Í 23. gr. áðurnefndra laga segir að ,,[í] námsbrautarlýsingu skal kveðið á um innihald og vægi áfanga í einstökum greinum, samhengi í námi, vægi námsþátta og lokamarkmið náms. Þar er ákveðinn lágmarksfjöldi áfanga og eininga í einstökum námsgreinum og inntak náms í megindráttum." Í samræmi við þetta eru námslínur/brautir Fjölbrautaskóla Suðurlands samsettar úr ýmsum áföngum þar sem mismikið er bundið í kjarna og nokkuð um val. Allir áfangar hafa kennsluáætlanir þar sem fram koma markmið, leiðir og kröfur um árangur nemenda. Þá hefur skólinn almennar námskröfur og reglur sem eru samræmdar og ná yfir alla nemendur.