Aðgangur að INNU og Office 365 í FSu og skólalykilorð
- Í heimabanka.
- Í bréfpósti á lögheimili eins og það er skráð í Þjóðskrá.
- Í bréfpósti á sendiráð Íslands í útlöndum þar sem bréfið fæst afhent gegn framvísun vegabréfs eða ökuskírteinis.
- Í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands, Borgartúni 21.
Skólalykilorð verða nemendur og starfsmenn að sækja sér (búa til) á slóðinni: https://lykilord.menntasky.is/ Til að geta búið til lykilorð þarf rafræn skilríki. Lykilorðið þarf að vera að lágmarki 12 stafir að lengd. Með skólalykilorði er hægt að tengjast tölvum skólans og komast inn á Office 365 kerfið. Með því að virkja Office 365 innskráningu í Innu (sjá neðar) er síðan hægt að komast hjá því að nota rafræn skilríki eða Íslykil til innskráningar í Innu sem einhverjum gæti þótt þægilegt. Athugið að notandanafn til auðkenningar inn í Office 365 er nánast undantekningalaust á forminu nafn.millinafn.kenninafn@fsu.is þannig að Jón Aron Jónuson fær notendanafnið jon.aron.jonuson@fsu.is
Skólalykilorð gildir í eitt ár og þegar það er útrunnið þarf að endurnýja það. Notendur geta endurnýjað skólalykilorð sjálfir með því að skrá sig inn á skólaborðtölvu og smella á Ctrl-Alt+Delete og velja Breyta lykilorði (Change password).
Þau sem koma í eigin persónu geta fengið aðstoð við að búa til lykilorð í Odda stofu 306B, á skrifstofu og á bókasafni.
Office 365
Allir nemendur skólans hafa aðgang að Office 365 pakkanum (Word, Excel, PowerPoint o.fl.) á meðan þeir eru skráðir í skólann og geta sett hann upp á 5 tölvum. Sjá leiðbeiningar hér: Athugið að notandanafn til auðkenningar inn í Office 365 er almennt á forminu nafn.millinafn.kenninafn@fsu.is. Notandanafnið virkar jafnframt sem tölvupóstfang. Dæmi: Jón Ævar Jónsson fær þá netfangið: jon.aevar.jonsson@fsu.is og Þóra Þórsdóttir fær netfangið: thora.thorsdottir@fsu.is. Með Office 365 kemur einnig OneDrive gagnageymslan í skýinu með 1 TB rými. Einnig fylgja með pakkanum aðgangur að forritum á borð við Outlook, PowerApps, Planner, SharePoint, Sway, Teams svo einhver séu nefnd.
Innskráningu í Office 365 þarf að staðfesta með annarri auðkenningu, svokallaðri tveggja þátta auðkenningu (skst. MFA), sjá leiðbeiningar hjá Menntaskýinu: MFA leiðbeiningar - Menntaský (menntasky.is). Mælt er með leið 1 - sms á þessum tengli þar sem smellt er á "Ég vil setja upp aðra aðferð" í neðra horni til vinstri og síðan er valið að senda textaskilaboð í síma. Á https://lykilord.menntasky.is er einnig hægt að endursetja tveggja þátta auðkenni, t.d. í þeim tilfellum þegar Autenticator appið virkar ekki sem getur gerst ef fólk skiptir um síma. Þá er smellt á neðri hnappinn á eftirfarandi mynd:
Til að opna á Office auðkenningu við Innu þarf að byrja á því að skrá sig í Innu með rafrænum skilríkjum og fara í Stillingar, sjá eftirfarandi mynd:
og velja þar: Innskráning með Google og Office 365, smella svo á Opna fyrir aftan Office 365:
Því næst þarf að slá inn Office 365 notandanafn og skólalykilorð.