FABL2FL05
Áfangalýsing:
Að kynnast möguleikum starfrænnar tækni, frjáls hugbúnaðar, Fab Lab smiðju og að geta notað tækni 21. aldarinnar með
starfrænum framleiðsluaðferðum. Nemendur kynnast áhöldum smiðjunnar í gegnum verkefni sem boðið er upp á. Kennt er
á frí tvívíddar og þrívíddar teikniforrit sem henta fyrir hönnun og auka nýsköpun. Verkefni eru síðan framkvæmd í
tölvustýrðum laserskera, vínylskera og þrívíddar prentara. Nemandinn öðlast færni til að virkja sköpunarkraft sinn og koma
þeirri þróun í framkvæmd í FabLab-smiðju.
Undanfari: enginn
Þekkingarviðmið:
Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
- FabLab-smiðju
- stafrænni framleiðslutækni
- tvívíddar og þrívíddarhönnun, teikningum
- frjálsum hugbúnaði fyrir tvívíddar- og þrvíddarhönnun
- hönnun og framleiðsluferli á 21. öldinni
- 3D prentara, vínylskera, hitapressu 3D skönnun, 3D prentara
- skrásetningu á ferli
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
- setja upp frjálsan hugbúnað
- nota stafrænan tækjabúnað við hönnun
- útbúa rafræn skjöl fyrir vélar í Fab Lab
- nota laserskurðartæki við hönnun
- nota vínylskera og hitapressu
- skanna í 3D og prenta í þrívíddarprentara
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta sett upp hugbúnað fyrir stafræna hönnun
- geta notað 3D skanna, vínylskera, laserskera og 3D prentara í hönnun
- lesa og vinna eftir leiðbeiningum
- þróa hugmyndir sjálfstætt og undir leiðsögn
- skrá ferli, meta og rökstyðja vinnu sína
- geta hannað, teiknað og framleitt eigin afurð
Námsefni:
Námsefni á netinu og afhent af kennara:
Fyrirkomulag námsmats:
Áfanginn er símatsáfangi. Námsmat byggist upp á mati kennara, sjálfsmati nemenda og jafningjamati.Við námsmat er
horft til verklags, vandvirkni, frágangs, ígrundunar, rökstuðnings og þátttöku í kynningum á eigin verkum og annarra. Þá er í
áfanganum unnið lokaverkefni sem metið er eftir frumleika, notkun grunnreglna, efnisvali og aðferðum.