FÓHE1GR03
FÓHE1GR03 – Fóðrun og heilsa I – Grunnnámskeið
Lýsing: Meginviðfangsefni áfangans er að kenna helstu undirstöðuatriði varðandi fóðrun og umhirðu hesta. Farið verður yfir helstu grunnþætti í atferli hesta, hvaða öryggisatriði beri að hafa í huga við almennt hestahald og hvaða reglur gilda þar að lútandi. Grunnatriði í almennri umhirðu hrossa s.s. fóðrun, hófhirðu og heilbrigði.
Forkröfur: HEST1GR05
Þekkingarviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnþáttum í atferli, eðli og hegðun, skapi, skynjun og skynfærum hesta.
- reglur varðandi hestahald og helstu öryggisatriðum er lúta að hestahaldi.
- aðbúnaði hrossa í hesthúsi og í haga.
- grunnatriðum varðandi fóðrun hrossa.
- helstu þætti varðandi mismunandi fóðurþarfar hrossa.
- mismun gróffóðurs og kjarnfóðurs.
- grunnatriðum lútandi vítamín og steinefnaþarfir hrossa.
- helstu atriðum er varða hófhirðu hrossa.
- helstu atriði er varða almennt heilbrigði hrossa.
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- umgangast hesta og annast þá á hestvænum og öruggum forsendum.
- nálgast, teyma, binda og meðhöndla hesta á réttan hátt.
- nota helsta búnað og aðstöðu sem fylgir greininni.
- aðstoða við fóðrun og hirðingu.
- hreinsa úr hófum fyrir og eftir útreiðar.
- aðstoða við járningar og hófhirðu útigangshrossa.
- meta almennt heilbrigði hrossa.
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- umgangast hesta og annast þá á hestvænum og öruggum forsendum.
- tekið við upplýsingum frá yfirmanni og aðstoðað við fóðrun og gegningar.
- hreinsað úr hófum.
Námsmat:
Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ýmsum verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.
Útgáfunúmer:
Skólar:
Leiðbeiningar:
Fyrirmynd: