HÖNN3HÍ05
Titill Híbýlahönnun
Námsgrein Textílhönnun
Viðfangsefni Textílhönnun innanhúss
Skammstöfun
HÖNN3HÍ05
Þrep
3
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla
Lýsing
Unnið er að textílverkefnum í híbýlum, nemendur vinna allan mögulegan textíl t.d púða, dúka, rúmteppi, gluggatjöld, listmuni og fl. Nemendur þjálfaðir í að virkja sköpunarkraftinn í hugmyndir sínar. Mismunandi stílar skoðaðir og einnig hönnuðir. Farið er yfir rými og notkun þess og nemendur vinna rýmisteikingar og líkön. Vettvangsferðir og verkefni nemenda verða til sýnis
Forkröfur
Engar
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Á mismunandi stílum í innanhússhönnun
- Á rými og rýmisteikningu
- Á hugmyndaöflun og uppsetningu
- Á mismunandi tækni í samsetningu verkefna
- Á samsetningu mismunandi hráefna
- Á framsetningu og frágangi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Skrá hugmyndir
- Skilja rými og rýmisteikningu
- Skilja ferlið frá hugmynd að fullunnu verki
- Hugleiða útlit, notagildi út frá fagur-og formfræðilegum forsendum
- Þekkja liti og gildi þeirra í umhverfi okkar
- Skapa og setja saman út frá á mismunandi hátt
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Vinna með hugmyndir sínar þannig að hægt sé að útfæra þær út frá lita-og formfræði
- Nota efni og form í eigin listsköpun
- Skynja liti og samsetningu þeirra í umhverfinu og í listsköpun.
- Geta gert auðvelda rýmisteikingu og líkön
- Kunna ýmsar saumtækniaðferðir við verkefnin sín.
Námsmat
Nemendur fá leiðsagnarmat fyrir hvern hluta t.d prufur, verklýsingar, púða og svo lokaverkefni
Leiðbeiningar