SAGA3MS05
Titill |
Menningasaga – brot úr menningasögu heimsins |
Námsgrein |
Saga |
Viðfangsefni |
Menningasaga – brot úr menningasöug heimsins |
Skammstöfun |
SAGA3MS05 |
Staða |

Þrep |
3 |
Einingafjöldi |
5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla |

Lýsing |
Í áfanganum verður skoðuð menningararfleifð þeirra fornþjóða í Evrópu sem hafa mótað vestræna menning. Nemendur kynnast mikilvægum áföngum í sögu þessara þjóða og menninga sem hafa mótað skilning okkar á heiminum og túlkun á þeim veruleika. Skoðuð verður menning, listir, bókmenntir og menntun bæði í fornöld sem og á miðöldum. Horft verður til lifnaðarhátta almennings og yfirstéttar á þessu tímabili. Munu nemendur tengja ýmsar hugmyndir, stef og stefnur námsefnisins við nútímann og spegla sig í gjörðum og hugmyndum fólks á öðrum tíma. Unnið verður með heimildarýni, bera saman mismunandi menningar og hefðir, beita gagnrýnni hugsun við rannsókn á mismunandi viðfangsefnum. Nemendur munu kynnast heimi ævisagna, goðsagna og fleiri gerðum bókmennta.

Forkröfur |
Nemandi skal hafa klárað 5 einingar á 2. þrepi. |
Þekkingarviðmið |
Nemandi afli sér þekkingar og skilnings á: - helstu þáttum sem mótað hafa vestræna menningu frá tímum Grikkja og fram yfir miðaldir
- orsökum þeirra og áhrifum á framvindun mála
- hvernig hinir ýmsu þættir mótuðu hugsun og hugmynda heim þess tíma og jafnvel nútímans
- heimildaöflun |
Leikniviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast leikni í: - að færa rök fyrir máli sínu
- vinna með heimildir
- að skrifa fræðilega texta - að kynna ákveðið viðfangsefni sem byggir á ítarlegri heimildaöflun
- að geta lýst aðstæðum á tilteknum tíma og rakið atburðarás í stórum dráttum
- að greina hvernig atburðir og samfélagsgerð hefur áhrif á þróun menningar
- að skýra helstu viðburði viðfangsefnisins
- að gera greinarmun á staðreynd og túlkun
- að draga sjálfur ályktanir og taki afstöðu til mála
- að flytja af nokkru öryggi endursagnir, kynningar og lýsingar á tilteknum málefnum
- að greina hvernig hugmyndir verða til og þróast
- að nota gagnrýna hugsun til að skora á viðteknar hugmyndir á öðrum tímum sem og okkar tímum |
Hæfniviðmið |
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: - kynna fræðilegt efni á viðeigandi hátt
- færa rök fyrir niðurstöðum
- gera sér grein fyrir orsakir og afleiðingar
- geta tileinkað sér hugtök, hugmyndir og orðræðu umrædds tímabils
- geta lagt mat á menningarverðmæti í nútímanum
- geta tengt atburði menningasögunnar við okkar tíma
- rökræða söguleg deilumál og þekki mismunandi sjónarmið
- geta sýnt kunnáttu sína í ljósu og samfelldu máli
- geta verið læs á fornan menningararf Evrópu
- vinna sjálfstætt og setja fram sögulega greiningu á hugmyndum og atburðum þessa tímabils |
Námsmat |
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámsskrá |
Útgáfunúmer |

Skólar |

Fyrirmynd |