SAGA3SS05
Titill |
Saga 20.aldar – stríð, byltingar og stjórnmál. |
Námsgrein |
Saga |
Viðfangsefni |
Saga 20.aldar – stríð, byltingar og stjórnmál. |
Skammstöfun |
SAGA3SS05 |
Staða |
|
Þrep |
3 |
Einingafjöldi |
5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla |
|
Lýsing |
Í áfanganum er fjallað um átök þjóða, þjóðfélagshópa og hugmyndastefna frá síðasta fjórðung 19. aldarinnar fram yfir síðari heimsstyrjöld. Farið verður nánar í orsakir og afleiðingar þeirra atburða sem mótuðu samfélag okkar í dag. Unnið verður bæði með yfirlitssögu sem og einsögu nálgun við umfjöllun um þetta tímabil. Fjölbreytt verkefni verða unni og lagt áherslu á sjálfstæð vinnubrögð nemenda.
|
Forkröfur |
Nemandi skal hafa klárað 5 einingar á 2. Þrepi. |
Þekkingarviðmið |
Nemandi afli sér þekkingar og skilnings á: - helstu þáttum/viðburðum heimssögunni undir lok 19. aldar og fram á 20. öld - orsökum þeirra og áhrifum á framvindu mála - hvernig þessir atburðir eru lykill að stöðu heimsmála í dag - heimildaöflun - mikilvægi gagnrýnnar hugsunar í umfjöllun um söguna |
Leikniviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast leikni í: - að færa rök fyrir máli sínu - heimildavinnu - að skrifa fræðilega texta - að meta gildi og áreiðanleika heimilda - að geta lýst aðstæðum á tilteknum tíma og rakið atburðarás í stórum dráttum - að skýra helstu viðburði tímabilsins - að gera greinarmun á staðreynd og túlkun - að draga sjálfur ályktanir - að flytja af nokkru öryggi endursagnir, kynningar og lýsingar á tilteknum málefnum |
Hæfniviðmið |
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: - kynna fræðilegt efni á viðeigandi hátt - færa rök fyrir niðurstöðum - gera sér grein fyrir orsakir og afleiðingar - geta rakið þróunarferli einhvers þjóðfélagsþáttar s.s. hugmyndar, atvinnuvegar, menningarsvæðis - tengja atburði heimssögunnar við okkar tíma - rökræða söguleg deilumál og þekki mismunandi sjónarmið - geta sýnt kunnáttu sína í ljósu og samfelldu máli - vinna sjálfstætt og setja fram sögulega greiningu á hugmyndum og atburðum þessa tímabils |
Námsmat |
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámsskrá. |
Útgáfunúmer |
|
Skólar |
|
Fyrirmynd |
|