STÆR3FD05
Titill |
Föll og deildun |
Námsgrein | Stærðfræði |
Viðfangsefni | Algengustu föll, deildun þeirra og helstu eiginleikar |
Skammstöfun | STÆR3FD05 |
Staða | |
Þrep | 3 |
Einingafjöldi | 5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla | |
Lýsing |
Meginefni áfangans eru föll, markgildi og deildareikningur. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Föll: Veldisföll, vísisföll, lograföll, andhverf föll, samskeytt föll, eintæk, átæk og gagntæk föll. Markgildi og deildun: Markgildishugtakið, skilgreining á afleiðu falls, deildun veldisfalla, vísisfalla, lografalla og hornafalla. Einnig er farið í reiknireglur fyrir deildun margfeldis, ræðra falla og samskeyttra falla, samfeldni og deildanleika falla og aðfellur, hagnýtingu deildunar við könnun falla, s.s. að finna staðbundin hágildi og lággildi, einhallabil, beygjuskil og jöfnu snertils svo og gröf falla. |
Forkröfur | STÆR2AF05 (STÆR2HV05 æskilegt) |
Þekkingarviðmið | Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: raunföllum, markgildum og deildun |
Leikniviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
|
Hæfniviðmið | Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
|
Námsmat | Námsmat byggist á stöðuprófum, verkefnum og lokaprófi. |
Útgáfunúmer | |
Skólar | |
Fyrirmynd | |