UMHV2UM05
Titill |
Umhverfisfræði fyrir alla |
Námsgrein | Umhverfisfræði |
Viðfangsefni | Umhverfisfræði fyrir alla |
Skammstöfun | UMHV2UM05 |
Staða | |
Þrep | 2 |
Einingafjöldi | 5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla | |
Lýsing | Í áfanganum, sem ætlaður er nemendum af öllum námsbrautum, er lögð áhersla á að nemendur verði meðvitaðri um þátt einstaklingsins í umhverfisvernd. Nemendur kynnast aðferðum við að áætla áhrif breyttra lifnaðarhátta á umhverfið og leitast er við að auka ábyrgðartilfinningu einstaklingsins gagnvart bæði sínu nánasta umhverfi og umhverfisins á hnattvísu. Nemendur kynnast helstu umhverfisvandamálum sem við glímum við í heiminum. Fjallað verður um mengun, veðurfarsbreytingar, dýr í útrýmingarhættu og auðlindaþurrð. Kynnt verða hugtökin ,,burðargeta“ og ,,sjálfbærni“, og hugtökin tengd fjölgun mannkyns og aðstæðum á jörðinni. Enn fremur verður fjallað um sjálfbæra auðlindanýtingu. Í áfanganum er leitast við að auka hæfni nemnda í að túlka gögn sem tengjast umhverfismálum á gagnrýninn hátt. Gert er ráð fyrir að nemendur vinni með gögn sem tengjast umhverfismálum. Nemendur verða hvattir til að velta því fyrir sér hvað móti tengsl manns og náttúru. Fjallað verður um muninn á hagrænum og fagurfræðilegum verðmætum og nemendur hvattir til að velta því fyrir sér hvað hafi áhrif á verðmætamat hvers og eins m.a. við að meta verðmæti í náttúrunni. |
Forkröfur | engar |
Þekkingarviðmið | Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
|
Leikniviðmið | Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
|
Hæfniviðmið | Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
|
Námsmat | Námsmat byggir á leiðsagnarmati, en fjölbreytt verkefni verða metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla er lögð á að veita nemendanum umsagnir um frammistöðu hans, en þeim er ætlað að leiða hann áfram í náminu. Engin skrifleg lokapróf eru haldin. |
Útgáfunúmer | |
Skólar | |
Fyrirmynd | |