Dúx á hestalínu
Fimm nemendur, þar á meðal Svanhildur Guðbrandsdóttir Dúx FSu vorið 2019 útskrifuðust af Hestabraut laugardaginn 25. mai.
Svanhildur Guðbrandsdóttir frá Syðri-Fljótum við Kirkjubæjarklaustur og Dagbjört Skúladóttir frá Þórustöðum í Ölfusi voru verðlaunaðar fyrir góðan árangur í hestatengdum fögum við þessa útskrift.
Svanhildur þreytti einnig afar gott verklegt próf í 5. stigi knapamerkjakerfisins fyrir páska. Í kjölfarið var henni boðið að sýna prófverkefnið á kynningu á knapamerkjakerfinu sem fór fram 1. mai í Samskipahöllinni í Kópavogi.
1.maí er ekki bara verkalýðsdagurinn, heldur einnig alþjóðlegur dagur íslenska hestsins. Upp á hann er haldið víða um heim með ýmsum sýningum og uppákomum eins og þessari sýningu sem fór fram hjá hestamannafélaginu Spretti.
Verklegt 5. og síðasta stig í knapamerkjum er afar krefjandi fimiprógramm sem reynir mikið á samspil manns og hest. Þetta próf er eitt af mörgum verkefnum sem nemendur á 3. ári á hestabraut fara í gegnum á sínum nemendahestum.