Heimsókn á Sjúkraliðabraut

Mánudaginn 15. nóvember komu góðir gestir á sjúkraliðabraut skólans. Þetta voru þau Margrét Auður Óskarsdóttir formaður Suðurlandsdeildar Sjúkraliðafélagsins, Birkir Högnason formaður Ungliðadeildar Sjúkraliðafélagsins og Birna Ólafsdóttir skrifstofustjóri og formaður fræðslunefndar Sjúkraliðafélags Íslands. Margrét Auður kynnti Suðurlandsdeildina og Birkir Ungliðadeildina, en í henni eru allir sjúkraliðar undir 35 ára aldri og nemar í sjúkraliðanámi. Þá kynnti Birna Sjúkraliðafélagið og fór yfir kjaramálin og réttindi nema í námi og starfi. Er þeim þökkuð fróðleg og góð heimsókn.