Fréttabréf 2023
Fréttabréf Hollvarðasamtakanna í október 2023
Ágætu Hollverðir og vinir Fjölbrautaskóla Suðurland
Nú sem fyrr þurfum við á styrkjum ykkar að halda og vonum að þið takið jákvætt í beiðni um greiðslu árgjalds.
Árgjaldið er áfram 2000 krónur.
Í heimabanka ykkar mun koma ósk um greiðslu á þessum 2000 krónum sem ganga til Hollvarðarsamtakanna.
Við biðlum til ykkar um að styrkja Hollvarðasamtökin og ekki síst að fá félaga ykkar sem voru í skólanum með ykkur til að ganga í Hollvarðasamtökin. Það munar um hvern og einn. Hollverðir hafa veitt námsstyrki við brautskráningu og einnig styrki til bókasafnsins, skólakórsins, söguskráningar skólans og sönglagastyrki. Ýmsa aðra styrki mætti nefna, s.s. fjárframlag til skólans vegna tækjakaupa til nýstofnaðrar pípulagningabrautar.
Markmið samtakanna er að auka tengsl skólans við fyrrum nemendur sína og aðra þá sem bera hag hans fyrir brjósti. Einnig að styrkja og efla skólann eftir fremsta megni, fjárhagslega eða á annan hátt.
Á heimasíðu FSu má finna krækju á vef Hollvarðasamtakanna en Helgi Hermannsson kennari og starfsmaður samtakanna sér um síðuna í samráði við stjórn Hollvarðarsamtakanna. Slóðin er https://www.fsu.is/is/um-skolann/samstarf/hollverdir
Á heimasíðu FSu má finna krækju á vef Hollvarðasamtakanna en Helgi Hermannsson kennari og starfsmaður
samtakanna sér um síðuna í samráði við stjórn Hollvarðarsamtakanna.
Slóðin er https://www.fsu.is/is/um-skolann/samstarf/hollverdir
Sömuleiðis eru samtökin með fésbókarsíðu sem gaman væri að þið fylgdust með.
Stjórn Hollvarðasamtaka FSu skipa:
Vera Ósk Valgarðsdóttir, formaður
Anna Árnadóttir ritari
Sigþrúður Harðardóttir gjaldkeri
Andrea Inga Sigurðardóttir, fulltrúi starfsmanna skólans
Formaður Nemendaráðs, fulltrúi nemenda skólans
Starfsmaður stjórnar er Helgi Hermannsson
Stjórnin