Aðgangur að hljóðbókum

Nemendur með greiningu um námserfiðleika eiga rétt á aðgangi að hljóðbókum í námi sínu. Hér á eftir eru upplýsingar um hvernig ferlið gengur fyrir sig.

1. Greining úr grunnskóla þarf að berast til náms- og starfsráðgjafa í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Foreldrar og forráðamenn verða að biðja um að gögn séu send milli skólastiga


2. Þegar greining er komin getur nemandi komið til náms- og starfsráðgjafa og skrifað rafrænt undir upplýst samþykki til að fá aðgang að hljóðbókum.


3. Nemandi fær síðan aðgangsorð sent í tölvupósti sjá nánar um ferlið: http://hljodbokasafn.is

4. Nemandi getur hlaðið niður hljóðbókum af vef Hljóðbókasafns Íslands.



Náms- og starfsráðgjafar FSu