Nemendaráð gekkst fyrir svokölluðum Bindisdegi föstudaginn 25. september. Í tilefni dagsins voru allmargir nemendur og kennarar fínni í tauinu en endranær. Á myndinni má sjá nokkra bindum skrýdda kennara reyna að koma Ninnu í skilning um að bindi skuli borin um hálsinn.