Busar vígðir

Nemendaráð stóð fyrir hefðbundinni busavígslu í liðinni viku. Nýnemar voru látnir fara í gegnum þrautabraut í Sigtúnsgarði og því næst boðnir velkomnir í skólann með kossi. Að því loknu gaf starfsfólk skólans öllum pylsur að borða.