Flóafárið gengið yfir

Hið langþráða Flóafár reið yfir föstudaginn 5. mars. Fimm lið glímdu við fárið að þessu sinni og stóðu sig vel í hinum ýmsu þáttum fársins, hvort sem um var að ræða þrautirnar sem kennarar lögðu fyrir, búningar og heróp eða annað sem tilheyrir því að taka þátt í fjörinu. Aðalatriðið er að vera með. Vampíruveldið sigraði að þessu sinni, lið Super Mario Bros varð í öðru sæti og Cabras höfnuðu í því þriðja.