Fyrsta skóflustunga tekin að nýju verknámsshúsi
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, tók skóflustungu að nýju verknámshúsi við Fjölbrautaskóla Suðurlands í dag. Húsið verður 1.650 fermetrar að stærð og tengt við Hamar, núverandi verknámshús skólans. Aðstaðan verður í Hamri endurbætt samhliða byggingu nýs húss.
Húsið byggja JÁ verktakar og hefst jarðvegsvinna strax á morgun, fimmtudag. Áætluð verklok eru um áramótin 2016 - 17 í síðasta lagi. Að verkefninu standa ásamt ríkinu, sveitarfélög í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og V-Skaftafellssýslu.
„Við leggjum áherslu á að húsið þjóni núverandi og vonandi nýjum starfsnámsbrautum við skólann. Verknámið er og verður áfram mikilvægt fyrir atvinnulíf Suðurlands sem og landsins alls. Því er tilkoma þessarar byggingar sérlega ánægjuleg og líkleg til að auka aðsókn í starfsnám,“ segir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari.