Gettu betur á laugardag

Lið FSu keppir á laugardagskvöldið við lið Verzlunarskólans í Gettu betur. Hefst viðureignin í Sjónvarpinu kl. 20. Okkar menn hafa æft stíft upp á síðkastið. Fengu þeir meðal annars lið Menntaskólans á Egilsstöðum í heimsókn fyrir viðureignina við MR í síðustu viku. Voru austanmenn vel útbúnir með nokkurs konar ferðastúdíó fyrir spurningakeppni og eina þrjá þætti tilbúna til æfinga. Þótti Hannesi Stefánssyni liðstjóra FSu mikið til koma í samanburði við eigin brjóstvasagagnabanka, sem þó hefur reynst notadrjúgur. Verður spennandi að sjá hvernig gengur hjá okkar mönnum gegn sterku liði Verzlinga á laugardaginn.