Gleðilegt sumar
23.04.2010
Þá er blessað sumarið komið, langt liðið á önnina og allir með sól í sinni. Grillin eru dregin fram í FSu og víðar, og ef manni verður kalt á nefinu í sumarylnum er gott ráð að drífa sig upp á þriðju hæð í Odda og upplifa suðræna stemmingu í hitabeltisloftslagi. Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn.