Góð gjöf
27.10.2017
Þriðjudaginn 24. október komu fulltrúar frá Rafiðnaðarsambandinu og Samtökum rafverktaka á Suðurlandi færandi hendi. Þessi samtök gáfu nemendunum 11 sem er á fyrsta ári á grunndeild rafiðna, nýjar glæsilegar spjaldtölvur svo að nemendur geti nýtt Rafbókina, aðalnámsefnið í rafiðnum í námi sínu.
Mikil ánægja var meðal nemenda og kennara brautarinnar með þessa glæsilegu gjöf.
Við færum þessu gestum innilegar þakkir.