Góðar og vondar fréttir

Kennarafélag FSu hélt almennan félagsfund miðvikudaginn 24. febrúar. Þórey Hilmarsdóttir kynnti á fundinum breytingar sem orðnar eru til hins betra á vísindasjóði FF og FS. Einnig kynnti Hörður Ásgeirsson launaþróun félagsmanna í KÍ, en þar blasir við bullandi kjaraskerðing og áframhaldandi niðurskurður á framlögum til skólanna.