Góður árangur í framhaldsnámi
08.03.2018
Tveir nemendur úr FSu, sem nú stunda nám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík, fengu nú um áramótin sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur. Það eru þau Bjarki Már Magnússon og Esther Ýr Óskarsdóttir. Þau komust bæði á svokallaðan forsetalista og fá niðurfelld skólagjöld fyrir eina önn í skólanum. Þess ber að geta að Esther Ýr sem er á 2. ári sínu í lögfræði komst einnig á forsetalista á sínu fyrsta ári.