Heimsókn í NLFÍ

Nemendum á sjúkraliðabraut FSu  var nýlega boðið í heimsókn á NLFÍ í Hveragerði. Það voru þær Valdís Brynjólfsdóttir hjúkrunarfræðingur og Magna Fríður Birnir hjúkrunarforstjóri sem tóku á móti tilvonandi sjúkraliðum, leiddu þá um stofnunina og kynntu starfsemi hennar. Sjúkraliðahópurinn er að útskrifast um næstu jól; lýkur bóklega náminu núna í vor og verklegu starfsnámi  fyrir jól 2010. Á myndinni eru sjúkraliðanemarnir,  Valdís og Magna frá NLFÍ og Rán Jósefsdóttir kennaranemi við HÍ.