Hittingur h-eldri nema

Þetta haustið hefur Sam-hópurinn  á Sjúkraliðabraut  haldið úti samsæti og hittingi h-eldri nema í hádeginu á mánudögum og fimmtudögum, frá 12:20 til 13:20, í  suðausturhorni nemendamötuneytisins. Byrjað var á daglegu samsæti í þrjár vikur og var svo metið að besta mætingin væri á mánudögum og fimmtudögum. Eru allir sem hafa löngun til að nýta sér þennan einstaka félagsskap hvattir til að kíkja í mötuneytið og taka þátt í fjörugum h-eldri nema umræðum.