Í úrslit Músíktilrauna

Í liðinni viku fór fram undankeppni Músíktilrauna í Íslensku óperunni. Að þessu sinni kepptu þrjár sveitir sem tengjast FSu:  Narfur af Eyrarbakka, The Fallen Prophecy úr Þorlákshöfn og The Assassin of a Beautiful Brunette frá Selfossi. Síðastnefnda sveitin komst áfram í úrslit sem fram fara laugardaginn 27. mars í Hafnarhúsinu (Listasafni Reykjavíkur). Sveitina skipa þeir Alexander Freyr Olgeirsson, Daníel Haukur Arnarsson, Fannar Freyr Magnússon, Sigurgeir Skafti Flosason og Skúli Gíslason.