Kakó og leikrit og kruðirí
26.11.2010
Nemendafélag FSu hefur ekki látið sitt eftir liggja í jólaundirbúningi þetta árið. Jólaskreytingum var komið upp í skólanum um síðustu helgi, og í miðvikudagshléinu í vikunni bauð NFSu upp á kakó og kruðirí í miðrými Odda. Síðast en ekki síst frumsýndi leikfélag nemenda jólaleikrit fimmtudaginn 25. nóvember. Verkið er alfarið samið af leikhópnum sem einnig sér um leikstjórn. Leikritið verður sýnt föstudag og laugardag næstkomandi í leikhúsinu við Sigtún á Selfossi (Gamla iðnskólanum).