Kastljósið og Queentónleikar

A fimmtudaginn næstkomandi verða hinir margumræddu Queen tónleikar í Fífunni í Kópavogi. Þar koma fram með kór FSu Eiríkur Hauksson, Magni og Hera Björk ásamt Jazzsveit Suðurlands. Þetta verða dúndurtónleikar sem enginn má láta fram hjá sér fara. Í Kastljósi í kvöld, miðvikudagskvöld, verður flutt brot úr þessari dagskrá.