Kennarafélagið fundar

Kennarafélag FSu hélt almennan félagsfund föstudaginn 20. mars. Meðal annars var rætt um horfurnar í skóla- og kjaramálum og ýmsa möguleika sem bjóðast félögum Kennarasambandsins í gegnum Orlofssjóð. Helgi Hermannsson formaður KFSu stýrði fundinum af öryggi og festu.