Námsver FSu

Frá og með mánudeginum 10. febrúar verður boðið upp á námsver í FSu.

Námsverið býður stuðning við heimanám allra nemenda og veitir nemendum með annað móðurmál en íslensku sérstakan stuðning.

Kennari er Klara Guðbrandsdóttir, stærðfræðikennari og náms- og starfsráðgjafi. 

 

Námsverið verður í boði á eftirfarandi tímum:

Mánudaga kl. 11:15 - 12:10 í stofu 207.

Mánudaga kl. 12:40 - 13:35 í stofu 208.

Fimmtudaga kl. 11:15 - 12:10 í stofu 201.

Fimmtudaga kl. 12:40 - 13:35 í stofu 201.