Og Rangæingar...

Fimmtudaginn 19. mars komu 10 nemendur Grunnskólans á Hellu í heimsókn í FSu. Álfhildur náms- og starfsráðgjafi tók á móti þeim og sýndi þeim skólann og Bjarni Rúnarsson formaður nemendafélagsins sagði frá félagslífi skólans. Svo skemmtilega vildi til að verkefnið „Komdu með út í geim” var í gangi þennan dag og mikið um að vera hvert sem litið var í skólanum á meðan á heimsókn þeirra stóð.