Rafrænar töflubreytingar mánudaginn 20. ágúst
Rafrænar töflubreytingar
Nemendur sem þurfa nauðsynlega að láta breyta stundatöflum sínum þurfa nú að óska eftir töflubreytingu rafrænt í Innu, mánudaginn 20 ágúst milli 10:00 og 13:00. Nemendur sjá síðdegis eða undir kvöld hvort tafla þeirra hafi breyst samkvæmt ósk eða ekki. Hafi taflan ekki breyst hefur ekki verið unnt að gera breytinguna. Ástæða þess er oftast sú að hópar eru orðnir fullir.
Athugið að töflubreytingar eru aðeins samþykktar ef um nauðsynlegar breytingar er að ræða s.s.
a) ef nemandi er með of fáar eða of margar einingar í töflu
b) að forsendur hafi breyst t.d. vegna falls í áfanga
Ekki er hægt að fá töflubreytingu eingöngu til að skipta um hópa.
Nemandi sem hyggst bara hætta í áfanga en ekki fá annan í staðinn getur gert það með því að fylla út eyðublað á skrifstofu skólans strax í upphafi annar.