Nýlega voru undirritaðir samningar milli FSu og samstarfsaðila um íþróttaakademíur sem skólinn heldur úti. Um er að ræða Körfuboltaakademíu, Knattspyrnuakademíu, Fimleikaakademíu og Handboltaakademíu, en alls stunda rúmlega 100 nemendur nám í akademíum skólans.