Silfurverðlaun í húsasmíði
09.02.2015
Einn Sunnlendingur var meðal verðlaunahafa á nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík sem haldin var nýlega.Þar fékk Selfyssingurinn Jón Steingrímur Kjartansson frá Vaðnesi í Grímsnesi silfurverðlaun nýsveina í húsasmíði. Jón lauk sveinsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands vorið 2014, en meistari hans var Sigurður heitinn Guðmundsson í SG.
Nýsveinahátíðin er árlegur viðburður sem nú var haldin hátíðleg í níunda skipti. Þar hljóta sveinsprófshafar viðurkenningar fyrir afburða vel útfært sveinsprófsverkefni.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og verndari hátíðarinnar, afhenti nítján nýsveinum verðlaun við þetta tilefni.