Skemmtileg gjöf

Katla Sif Ægisdóttir og Anna Sigurveig Ólafsdóttir færðu stjórnendum málvek sem þær höfðu unnið sama…
Katla Sif Ægisdóttir og Anna Sigurveig Ólafsdóttir færðu stjórnendum málvek sem þær höfðu unnið saman að gjöf.

Skemmtileg uppákoma varð nýlega á kaffistofu kennara í F.Su. þegar tvær námsmeyjar í myndlist, Anna Sigurveig Ólafsdóttir og Katla Sif Ægisdóttir, færðu stjórnendum málverk sem þær vildu gefa skólanum.

Mikil vinna hafði farið í málverkið og þær notað um hálfa önnina til að klára það. Innblástur fengu stöllur frá listmálurunum Louisu Matthíasdóttur og Magnúsi Jónssyni.

Anna og Katla eru miklar vinkonur og hestakonur og bera hestarnir í verkinu allir nöfn úr hestafjölskyldum beggja.

Mæltist þetta atvik vel fyrir af öllum viðstöddum og var listamönnunum boðið upp á hressingu í lok athafnar.