Söngkeppni á fimmtudag

Hin árlega söngkeppni FSu verður haldin næstkomandi fimmtudagskvöld í Iðu. Að þessu sinn ber hún yfirskriftina „Diskó hinna dauðu”. Tuttugu keppendur þenja raddböndin í 15 lögum við undirleik brúnettubananna í hljómsveitinni The Assassin of a Beautiful Brunette. Þar verður einnig bein útsending frá undirbúningi keppninnar. Hefst hún á þriðjudagskvöldið og stendur fram að keppni.