GLÆSILEGIR FULLTRÚAR FSu

Tveir fyrrum nemendur FSu hlutu á dögunum styrki úr Afreks- og hvatningasjóði Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og/eða íþróttum. Fyrrum nemendurnir eru Guðmunda Þórunn Þorvarðardóttir og Ólafía Guðrún Friðriksdóttir. Við erum að rifna úr stolti og óskum þeim innilega til hamingju með styrkinn. Nánari upplýsingar um verðlaunin og verðlaunahafana eru á vef Háskóla Íslands.