Rafrænar töflubreytingar á haustönn 2022
Nemendur sem þurfa nauðsynlega að láta breyta stundatöflum sínum þurfa nú að óska eftir töflubreytingu rafrænt í Innu, miðvikudaginn 17. ágúst milli klukkan 10:00 og 13:00. Nemendur sjá samdægurs hvort tafla þeirra hafi breyst samkvæmt ósk eða ekki. Hafi taflan ekki breyst hefur ekki verið unnt að gera breytinguna. Ástæða þess er oftast sú að hópar eru orðnir fullir.
Athugið að töflubreytingar eru aðeins samþykktar ef um nauðsynlegar breytingar er að ræða.
Ekki er hægt að fá töflubreytingu eingöngu til að skipta um hópa.
Útskriftarnemendur:
Nemendur sem hyggjast útskrifast um jólin eru hvattir til að fara vel yfir námsferilinn sinn. Sé þörf á töflubreytingum eru þeir beðnir um að nota rafrænu töflubreytingarnar. Útskriftarnemendur geta sent póst á áfangastjóra með efnislínu: "útskrift haust 22".
Námsráðgjafar verða með opnar stofur til þess að aðstoða nýnema og þá nemendur sem lenda i vandræðum með rafrænu töflubreytingarnar.
(athugið þarf ekki að panta tíma, bara mæta):
18. ágúst 8:30 -12:00 í stofu 309
19. ágúst 8:30-12:00 í stofu 309
Smellið hér til að nálgast leiðbeiningar vegna rafrænna töflubreytinga