Upphaf haustannar

Undirbúningur fyrir haustönn 2024 er í fullum gangi. Skrifstofan opnaði eftir sumarleyfi þann 7. ágúst og hægt og bítandi lifnar yfir skólanum er starfsmenn mæta í hús. 15. og 16. ágúst eru starfsdagar kennara. Mánudaginn 19. eru nýnemar boðnir velkomnir kl. 8:30 og þriðjudaginn 20. ágúst hefst kennsla samkvæmt stundarskrá kl. 8:15. Dagskrá nýnemadags verður send nýnemum og foreldrum þeirra í tölvupósti þegar hún liggur fyrir.