Úr leik í Gettu betur

FSu lauk keppni í Gettu betur á laugardaginn þegar liðið beið lægri hlut fyrir Verzló. Eftir hraðaspurningar var staðan 21:12 Versló í vil og lokatölur urðu 35:14. Keppendur og stuðningsmenn FSu skörtuðu ræktarlegum mottum sem settu skemmtilegan svip á keppnina. Lið Verzlunarskólans mætir MR-ingum í úrslitum laugardaginn 27. mars.