Úrslit ráðast í körfunni

Körfuknattleikslið FSu leikur tvo leiki á næstu dögum. Í þeim ræðst hvort liðið kemst í úrslitakeppni 8 efstu liða, heldur sæti sínu í úrvalsdeildinni eða fellur jafnvel í 1. deild. Fyrri leikurinn er gegn Grindavík á útivelli föstudaginn 6. mars og sá síðari sunnudaginn 8. mars gegn bikarmeisturum Stjörnunnar í Iðu.